154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[14:01]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Þó að þetta frumvarp snúist dálítið mikið um raforkuviðskiptin þá hefur hér verið töluvert rætt um orkuöflun, notkunina og dreifinguna og hún skiptir máli. Ég held að það sé samhengi þessara hluta sem þurfi alltaf að vera á borðinu. Hv. þingmaður nefndi Vestfirði og Suðurnes. En þetta á ekki síður við um Norðausturland og Austurland. Það eru t.d. fjölmargar fiskvinnslur þar, uppsjávarvinnslur, sem keyra hluta úr ári eða jafnvel allt árið á svartolíu. Og nú þegar neytendur eru sífellt að verða meðvitaðri um að kaupa vistvæna vöru þá lít ég þannig á að með því að geta ekki skaffað þessum fyrirtækjum græna orku þá erum við í rauninni að segja við þau: Við ætlum bara að leyfa skakkri samkeppnisstöðu að viðgangast, vegna þess að fyrirtækið mun í auknum mæli fara að telja sér það til tekna að vinna vöruna með grænni orku. Ég spyr hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér um það að þetta sé skylda stjórnvalda. Við erum hins vegar kannski ekki svo sammála um að þetta sé alfarið Sjálfstæðisflokknum eða Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum að kenna (Gripið fram í.) vegna þess að þetta er auðvitað áratugalöng saga. Þess vegna spyr ég, af því að hv. þingmaður talaði dálítið mikið um eignarnám, sem er nú svona ýtrasta leiðin, hvort þingmaðurinn sé ekki sammála mér um að við ættum hins vegar að fara að einhenda okkur í það að útbúa miklu vandaðri lög um landsskipulag þar sem heildarhagsmunir þjóðarinnar eru undir og hagsmunir einstaklinga, ábúenda eða einstakra sveitarfélaga verða bara að lúta einhverjum heildarhagsmunum allrar þjóðarinnar.