154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[14:04]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Nei, mér fannst ekki á þessum 20 mínútum að ég talaði mikið um eignarnám. Ég sagði reyndar að ef það kæmi berlega í ljós að það væri stórkostlegt hagsmunamál fyrir samfélagið í heild sinni að ráðist yrði í það að framkvæma eignarnám til þess að koma þá í veg fyrir að milljónum og aftur milljónum lítra af olíu væri brennt hér … En einmitt í því sem hv. þingmaður nefnir alltaf svo fallega í sambandi við grænu orkuna okkar og hvernig við ætluðum að reyna að byggja hér upp og sýna fram á það að við séum grænust og vænst, þá get ég á móti sagt: Sko, það er annað sem ég veit og efast ekki um að hv. þingmaður að hefur furðað sig á líka, þ.e. þegar allt í einu var tekið til núna í desember í bandorminum og sett alls konar gjöld á rafbíla. Það er verið að tala um orkuskipti en á sama tíma og verið er að tala um orkuskipti þá átti allt í einu að hækka gjöld og álögurnar á rafbílana voru hækkaðar, sem var annars þannig úr garði gert allt saman að það var hvati fyrir einstaklinga að færa sig yfir í rafmagn, en það mátti bara bíða. Vitur maður hefði væntanlega beðið eftir því að vera búinn að ná því markmiði sem hann stefndi að, að það væru komin alvöruorkuskipti inn í t.d. bílaflotann. En nei, það er nefnilega þannig að það er oft byrjað hér á öfugum enda. Þannig að ég segi: Ég vil ekki gera það sama hvað lýtur að raforkunni okkar. Ég vil segja það að 100% eigi heimilin að geta verið tryggð, því að þau eyða ekki og nýta ekki nema innan við 5% af framleiddri orku. Og varðandi það sem hv. þingmaður segir, auðvitað er það rétt hjá honum. Ég tók bara sérstaklega sem dæmi fyrir vestan og sunnan af því að það hafi verið svo mikið í umræðunni. En að sjálfsögðu veit ég að þetta er viðtekið úti um allt og var mjög slæmt á Akureyri á sínum tíma en skánaði til muna eftir að það bættist við línan frá Kröflu. En við höfum (Forseti hringir.) verk að vinna, hv. þingmaður, þegar við fáum tækifæri til að reyna að (Forseti hringir.) vinda ofan af þessu rugli sem er búið að vera (Forseti hringir.) hér við stjórnvölinn á undanförnum árum.