raforkulög.
Frú forseti. Það er auðvitað allt of algengt að hægri höndin grípa eitthvað í búðarhillu og sú vinstri hendi því frá sér. Þetta á auðvitað við um rafbílana sem var alveg ótrúlega skammsýn hugsun. Svipað gerðist rétt eftir að hæstv. þáverandi iðnaðarráðherra tilkynnti útspil um stórhuga áform um að byggja 30.000 íbúðir, þá birtist fjármálaáætlun fyrir réttu ári síðar þar sem voru aðgerðir til að draga úr þenslu á byggingarmarkaðnum. Þannig að fólk þarf náttúrlega bara ákveða sig í hvorn fótinn það vill stíga. En ég geng ekkert gruflandi um það að hv. þingmaður vilji að við keyrum hér um og tökum allar jarðir eignarnámi. Ég var bara að velta því fyrir mér hvort hv. þingmaður væri ekki sammála mér um að við gætum búið til löggjöf þar sem heildarhagsmunir þjóðarinnar á nokkrum sviðum, m.a. þessu, dreifikerfi raforku, væru bara vel skilgreindir og einstakir ábúendur gætu ekki haldið mikilvægum innviðum eða innviðauppbyggingu í gíslingu svo árum skiptir.