154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[14:07]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Jú, það væri náttúrlega afskaplega gott ef við gætum gert það. En hins vegar þá eiga ábúendur og jarðeigendur sinn eignarrétt þannig að þá erum við aftur komin að þessu að ef nauðsyn krefur þá verðum við að beita öðru. Við getum ekki komið með almenna löggjöf og teiknað upp hvernig við ætluðum að hafa þetta nema þá í sátt og samlyndi við alla aðila og þá sem málin varða. En ég tel að það væri náttúrlega fallegasta sýnin ef við gætum bara teiknað þetta upp hér og nú og allir bara sammála og öll dýrin í skóginum vinir og við gætum bara farið að vinna af heilindum fyrir heildina án þess að þurfa að standa í svona argaþrasi og svona plástrum eins og við erum að upplifa hér í dag og setja pínulítinn plástur á sárið af því að þessi stjórnvöld eru með allt saman gjörsamlega niður um sig í málaflokknum.