raforkulög.
Virðulegi forseti. Við erum hérna að ræða frumvarp sem gengur út á það að tryggja raforkuöryggi notenda til heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Einnig verið að ræða hérna forgangsröðun komi til þess að grípa til skömmtunar. Umræðan hérna í dag og í gærkvöldi hefur verið bara virkilega góð og reyndar farið langt út fyrir markmið frumvarpsins, sem gerir málið oft og tíðum jafnvel enn betra og sýnir okkur heildarmyndina í þessum málum. Ég er þeirrar skoðunar að ég fagna því alltaf þegar við ræðum um raforkumál og orkumál almennt. Það hefur allt of lítið verið gert af því undanfarin ár og svo sem löngu kominn tími til þess að við látum þetta vera í forgangi hjá okkur, sem það hefur verið á þessu kjörtímabili.
Í nefndaráliti meiri hlutans kemur fram að það sé ljóst að eftirspurn eftir raforku mun halda áfram að aukast og raforkuspá Landsnets hefur sýnt það skýrt að það er rétt. Við höfum svo sem fengið fleiri spár sem sýna það og að eftirspurn hefur aukist meira og hraðar en framboðið. Þetta einskorðast ekki við stöðuna hér á Íslandi heldur er þetta bara um allan heim og eru þjóðir að gera ráð fyrir, ekki tugum prósenta aukningu heldur jafnvel hundruða og leita logandi ljósi að grænni orku og horfa öfundaraugum til Íslands.
En þrátt fyrir okkar sterku stöðu hvað varðar grænu orkuna og þessa endurnýjanlegu orku sem við eigum að nýta hér og þessa auðlind sem við höfum yfir að búa, þá er þetta ekki ótakmörkuð auðlind þannig að það þarf að vanda til verka þegar kemur að þessum málum. Í raun ganga markmið raforkulaga út á það að stuðla að þjóðhagslega hagkvæmu raforkukerfi og efla þannig atvinnulíf og byggð í landinu. Og það er það sem við erum að skoða í tengslum við þetta því að við þurfum líka að skapa forsendur fyrir samkeppni, samkeppni fyrirtækja. Samningar þeirra fyrirtækja sem eru að vinna orkuna við stóraðila, stórnotendur, ganga út á það að styrkja stöðu landsins og fá hingað til okkar fyrirtæki eða jafnvel skapa fyrirtæki hér þannig að einstaklingar sjái hag sinn í því að stofna fyrirtæki, vinna vissar vörur og selja úr landi til að auka útflutningstekjur okkar og styrkja stöðu landsins. En þá er einmitt verið að bjóða upp á langtímasamninga en samninga sem eru hins vegar líka ógagnsæir og við getum ekki fengið upplýsingar um. En þetta á að styrkja samkeppnisstöðu Íslands, bjóða upp fleiri ár og orkuna á góðu verði og það á að vera hvati til framleiðslu.
Eins og ég kom inn á áðan er visst ógagnsæi á íslenskum raforkumarkaði. Það er skortur á upplýsingum. Það eru jafnvel misvísandi upplýsingar eftir því hvern þú talar við og þar af leiðandi er erfitt að taka réttar ákvarðanir ef gögnin sem við höfum á borðinu til að taka ákvarðanir út frá eru ekki rétt. En við erum hins vegar að sjá fram á betri stöðu.
Hér hefur verið umræða um hvort það sé skortur á raforku hér á landi eða ekki. Sumir þingmenn vilja meina að það sé enginn skortur hér á landi á meðan aðrir benda á hið augljósa. Það fer líka bara eftir því hvernig við horfum á myndina. Ef við ætlum að fara að skerða orku til stórnotenda til að forgangsraða til heimila og fyrirtækja — já, væntanlega er það hugsunin hjá fólkinu — þá þurfum við líka að horfa á hvernig samfélagi við viljum búa í. Viljum við fara að skerða útflutningstekjur okkar enn frekar? Samkeppnisstöðu landsins? Í rauninni fá minni tekjur inn í þjóðhagsreikninginn okkar og þar af leiðandi ekki geta boðið upp á jafn góða þjónustu og raun ber vitni? Þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða í heildarsamhenginu hvað er hagkvæmt fyrir Ísland.
Ég er persónulega þeirrar skoðunar að við eigum að halda áfram uppteknum hætti, afla frekari orku en passa að gæta að vernd náttúrunnar okkar, stíga varlega til jarðar hvað það varðar en jafnframt skoða tækifærin okkar til að auka orkuöflun en horfa líka til þess að efla flutningskerfið okkar svo við getum nýtt orkuna betur og reyna að forðast sóun eins og hægt er og fara varlega og vandlega með okkar orku. En við sjáum samt sem áður að það verður betri staða þegar fram í sækir. Það verður aukin orkuöflun ef við horfum bara til stækkunar Þeistareykja, ef við horfum til Hvammsvirkjunar, Búrfellslundar og fleira. En eins og ég segi þá þurfum við bara að horfa líka á heildarmyndina.
En það sem ég velti fyrir mér í tengslum við þetta frumvarp hér er að verið er að reyna að leita leiða til að tryggja orkuöryggi til heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja, sem er algjörlega ferðarinnar virði. Það var lagt fram mál hérna fyrr í vetur eða í fyrravetur sem náði ekki fram að ganga og hér er verið að reyna að gera aðra tilraun með annarri nálgun. Hér er verið að leggja til að í staðinn fyrir að þau fyrirtæki sem eru að afla orkunnar séu að taka orku til hliðar sem þau geti þá sótt í verði þess þörf, komi til skerðingar. Þá er verið að leggja hér til að stórnotendur geti selt aftur orkuna inn á markað til Landsnets, sem er markaðsaðilnn sem sér um að stýra orkunni, að hann geti keypt orkuna til baka.
Það sem ég velti hins vegar fyrir mér er að við erum með þessa langtímaframtíðarsamninga við stórnotendur til þess að laða þá til landsins, þeir geti fjárfest og það er eitthvað ákveðið magn af orku sem þeir kaupa, hvort að þetta gæti orðið til þess að ef verð vörunnar lækkar sem þessir stórnotendur eru að framleiða, hvort það verði hreinlega til þess að það verði minni hvati fyrir þessi fyrirtæki til að framleiða vörur og selja þá frekar orkuna inn á markað. Það er í rauninni ekkert í þessu, eins og ég skil þetta, sem getur veitt okkur upplýsingar um á hvaða verði stórnotendur selja orkuna aftur til baka til Landsnets. Þá veltir maður fyrir sér, þar sem þetta er í rauninni okkar auðlind, fyrirtæki í eigu ríkisins sem er að afla orkunnar, og svo sem líka önnur fyrirtæki, og selja orku til stórnotenda á vissum forsendum, að fyrirtækin geti selt orkuna til baka þá jafnvel á hærra verði, hvort þetta leiði til þess að orkuverð til heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja muni þá bara hækka.
Ég er smeyk um að það gæti gerst og við höfum í rauninni engin tök á því eða verkfæri til að geta fylgst með þessu vegna þess að ógagnsæi ríkir á raforkumarkaði. Við getum ekki kallað eftir þessum upplýsingum þar sem trúnaður gildir um þessa samninga. Þannig að það er spurning hvort hægt sé að skoða þetta eitthvað frekar því að þetta frumvarp er bara góðra gjalda vert. Markmiðið er afar brýnt og það er mikilvægt. Ég held að við séum öll sammála því að hér þurfi að tryggja raforku til heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja. En við sjáum bara hver staðan er í Noregi þar sem þau selja orkuna frá sér. Þar verður skortur á orku og þau þurfa að kaupa hana til baka á margfalt hærra verði, sem verður til þess að jú, heimilin þurfa á endanum að borga hærra verð. Þannig að til þess að styrkja og halda áfram okkar sterku samkeppnisstöðu og svo að það raski ekki samkeppni og við náum að tryggja hlut heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja, þá velti ég því bara aðeins upp hvort við þurfum ekki bara skýrari ramma og meira gagnsæi af því að ég tel það vera algerlega óásættanlegt að fyrirtæki geti hagnast á auðlindinni okkar. Það er spurning hvort hægt sé að skýra þetta eitthvað frekar í vinnu nefndarinnar í málinu af því að meiri hlutinn er að undirstrika það að raforkuöryggi og tryggt framboð raforku séu grundvallarþættir í þjóðaröryggi landsins og það sé nauðsynleg forsenda fjölbreyttrar atvinnustarfsemi og jákvæðrar byggðaþróunar. Maður veltir því líka fyrir sér hér, og ég bið þingmenn um að velta því fyrir sér, hvernig væri eiginlega að búa á Íslandi ef við nytum ekki þessarar auðlindar. Þannig að það er afar brýnt að við finnum lausn til framtíðar og það liggur fyrir að það mun vera lagt fram frumvarp þar sem á að fara í heildarendurskoðun á raforkumarkaðnum á Íslandi. Í því ljósi þá velti ég því upp hér hvort það væri ekki hreinlega skynsamlegt að skoða það að tengja þessi mál saman.
Ég ætla að láta þetta nægja í tengslum við þessa umfjöllun en ég sé að ég er að fá hérna andsvör þannig að ég þakka bara fyrir og hlakka til andsvaranna.