raforkulög.
Forseti. Einmitt þessi lokaorð: Er skortur á orku eða ekki? Það hefur verið hluti af umræðunni hjá hæstv. ráðherra ríkisstjórnarinnar að hér sé orkuskortur þannig að það á ekki að vera umdeilanlegt að þau skilaboð koma frá ríkisstjórninni. Hins vegar er það einfaldlega mjög ónákvæmt því að við erum svo langt í frá komin á þann stað að við förum að tala um orkuskort fyrir heimili og smærri fyrirtæki. En það er skylda stjórnvalda að tryggja orkuöryggi, sem er einmitt verið að reyna að gera með þessu frumvarpi. En það sem vantar kannski í þetta frumvarp, sem kemur inn á það sem hv. þingmaður talaði um varðandi vandann t.d. í Noregi og svoleiðis, er að það vantar að tryggja hérna sanngjarnt verð í þessu líka, sem er hluti af tilskipuninni um þriðja orkupakkann t.d. Þar er stjórnvöldum gefin heimild til þess að tryggja heimilum og smærri fyrirtækjum orku á öruggan og sanngjarnan máta, sem sagt öruggt aðgengi að orku á sanngjörnu verði. Hérna er verið að segja: Allt í lagi, það er forgangsröðun á orku fyrir heimili og smærri fyrirtæki en því er sleppt að fara út í að skilgreina hvað er þá sanngjarnt verð og hvernig á að tryggja sanngjarnt verð. Þar finnst mér við vera að ganga í sömu gildru og Noregur, en ein af ástæðunum fyrir því að raforkuverð fór gríðarlega hækkandi í Noregi var einmitt framsalið á orku, þ.e. að orkukaupendur, stórnotendur orku og aðrir, keyptu upp orkuna, sem gerði það að verkum að það þurfti að endurkaupa hana á miklu hærra verði. Það var búinn til aukamilliliður sem bjó til ákveðna einokun. Og það er það sem er verið að tala um (Forseti hringir.) þegar verið er að pæla í því að leyfa (Forseti hringir.) álfyrirtækjunum með öðrum stórnotendum að selja út (Forseti hringir.) orku aftur í kjölfarið. Eigum við ekki að reyna (Forseti hringir.) að gera ekki sömu mistök og Noregur?