raforkulög.
Forseti. Já, lágt raforkuverð og gagnsæi eru alveg vandamál. Það þarf ekki mikið meira en ákvörðun því að öll viðskipti við hið opinbera, við í raun alla landsmenn, er ekki eitthvað sem á að vera hægt að fela sig á bak við með einhverjum viðskiptahagsmunum. Fyrirgefðu, þú ert að eiga viðskipti við alla landsmenn. Þar af leiðandi eiga allir landsmenn hafa heimild til að sjá forsendur þess sem kjörnir fulltrúar þeirra eða ríkisstjórn eru að gera í viðskiptasamningum við einkaaðila. Einkaaðilar geta ekki sagt: Heyrðu, hið opinbera má ekki gera samningana opinbera. — Bara fyrirgefðu, jú, þetta er hið opinbera, þetta er þjóðin eins og hún leggur sig. Hún á rétt á að sjá hvaða samninga ríkisstjórn er að gera gagnvart kjósendum sínum.
Síðan með þetta lága raforkuverð og kannski loftslagsumræðuna sem við vorum í hérna. Við erum að borga 100 milljarða, alla vega fyrir nokkrum árum síðan en kannski eitthvað aðeins rúmlega það núna, bara til að kaupa olíu. Það er gjaldeyrir sem við getum vel verið án (Forseti hringir.) og stórnotendur mega alveg borga aðeins meira af krónum fyrir olíuna. (Forseti hringir.) Við getum notað þá orku sem við erum þegar að framleiða til að losna við það að þurfa að kaupa inn 100 milljarða af olíu á hverju ári.