154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[14:31]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tók reyndar ekki eftir neinni spurningu í máli hv. þingmanns en ætla samt sem áður að koma hérna aðeins upp og halda áfram með þessa umræðu því að hún er góðra gjalda verð og afar mikilvæg. En varðandi kaupin á olíu þá er það þannig að þrátt fyrir að við séum að nota hátt í 90% af grænni, endurnýjanlegri orku fyrir hitun heimilanna okkar og svoleiðis þá eru það 40% í framleiðslu og iðnaði sem nota olíu enn í dag. Það er verkefni sem við þurfum að vinna að og ég veit að er verið að gera. En varðandi orkuskiptin og kaup á olíu þá þurfum við frekari orku til að geta farið að framleiða græna orku hér á landi til að vinna okkur lengra áfram í orkuskiptunum og til geta orðið sjálfbærari í orkunýtingu og -notkun hér á landi og þar af leiðandi frekar náð okkar loftslagsmarkmiðum, ég tala nú ekki um að spara líka gjaldeyrinn okkar af því að flytja inn olíu til Íslands.