raforkulög.
Virðulegi forseti. Þrátt fyrir að við séum að ræða tiltölulega afmarkað mál sem snýr að forgangi heimilanna þegar kemur að skerðingu orku þá getur sú umræða leitt til almennra samtals um nýtingu orku almennt. Mér fannst hv. þingmaður svo sem gefa færi á því þegar þingmaðurinn lýsti áhyggjum af því að stórnotendur gætu hugsanlega verið í einhverju braski með orku, að fá aðgang að orku á lægra verði og selja síðan til annarra sem ekki njóta sama aðgangs. Mér finnst þetta vera tilefni til að skoða það og kalla kannski bara á stærri umræðu. En ég hef þó tvær mínútur hérna til að að velta aðeins vöngum yfir þessu því að þetta er auðvitað bara stórmál. Orkuauðlindir eru auðvitað takmörkuð auðlind og ef við erum að veita aðgengi að slíkri takmarkaðri auðlind — að ekki sé verið að misnota það með einhverjum hætti eða búa til einhvern ágóða fyrir sjálfan sig. Ég vil bara minnast á kísilverið í Helguvík, þegar því var lokað forðum daga. Arion banki leysti kísilverið með nokkurra ára raforkusamning til sín. Á sama tíma bjuggum við við orkuskort á Suðurnesjum en við vissum aldrei hvað var gert við þessa orku, þennan samning sem Arion banki eignaðist allt í einu. Alla vega var hún ekki nýtt á Suðurnesjum eða við fengum ekki sem sveitarstjórnarfulltrúar neina vitneskju um það með hvaða hætti hún væri nýtt. Og af því að við erum líka að ræða hér aðgang að sjávarútvegsauðlindinni, þurfum við ekki bara að fara að ræða öll þessi mál í einhverju stærra samhengi og átta okkur á því að aðgangur að náttúruauðlindum, annaðhvort ókeypis eða á lægra verði, býr til forréttindastéttir á Íslandi?