154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Það má til sanns vegar færa að milliliðabransinn blómstrar. Bæði er það regluverkið sem kemur að utan en líka regluverkið sem við setjum okkur hér heima sem veldur þessari tregðu hvað nýju framleiðsluna varðar. Ég er hræddur um að fyrstu orkupakkarnir hafi ýtt undir þessa milliliðavæðingu sem hv. þingmaður nefnir og er hárrétt. Ég held hvað seinni pakkana varðar, eins og t.d. þriðja orkupakkann, að við eigum eftir að sjá megináhrif þess koma fram, því miður. Í orkugeiranum gerast hlutir hægar en í mörgum öðrum geirum. Ég er hræddur um að þar eigum við eftir að bíta úr nálinni með eitt og annað sem bent var á og varað var við á sínum tíma. Hvað öfug áhrif umhverfisregluverksins varðar er alveg hárrétt að það að regluverkið ýti undir það að við framleiðum rafmagn með olíubruna vestur á fjörðum og í bræðslu og þar fram eftir götunum, það getur ekki hafa verið markmiðið.