raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er innilega sammála honum. Ég veit til þess að í Danmörku, þar sem ég á vinafólk, er það orðið þannig að maður þarf að vera hálfgerður snillingur í því að finna út hvenær boðið er upp á lægsta verðið. Fólk talar um að það þurfi að setja þvottavélina í gang klukkan tíu mínútur yfir tvö um nótt. Svo fara allir af stað á þeim tíma. Þá uppgötva fyrirtækin að allir nota orku á þessum tíma og hækka gjaldið. Þá þarf að finna annan tíma. Hann sagði að þetta væri mesti skrípaleikur sem hann hefði tekið þátt í um ævina, að reyna að finna út hvar hann gæti fengið orku til að knýja sín tæki og tól á viðunandi verði þannig að hann þyrfti ekki að borga tvöfalt eða þrefalt verð fyrir það. Ég spyr: Er það þetta sem við eigum eftir að sjá hér á landi?