154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:17]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef ekki hugsað þetta í þessu samhengi áður en kannski verða snjallmælarnir einhvers lags mannlegt hamstrahjól. Við verðum sólarhringinn langan að leita að bestu tímasetningunni til að þvo þvottinn eða hlaða bílinn okkar og þar fram eftir götunum. En ég held að við hér á Íslandi þurfum aðeins að nálgast þetta bara eins og kalda vatnið okkar, sem við teljum vera best í heimi. Að við séum í þessari stöðu, sérstaklega með heimilismarkaðinn sem er brotabrot af orkunotkun landsins, að öll orkan og kostnaðurinn sem fer í þetta utanumhald — ég held að það sé ekki gott að stunda slíkan bisness. En þetta verður einhvers lags svona hamstrahjól okkar mannfólksins að eltast við það að þvo þvott um miðjar nætur og þar fram eftir götunum og fatta síðan að tíu mínútur yfir tvö að nóttu til er ekki besti tíminn lengur.