154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:18]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ræðuna sína. Hins vegar geri ég nokkrar athugasemdir hér og fyrst ræðutíminn er takmarkaður byrja ég kannski á því að gera athugasemd við lausnina sem hv. þingmaður leggur fram við þessum raforkuskorti sem blasir við akkúrat núna. Hún er sem sagt að framleiða meiri orku. Lausnin felst að mínu mati, og ég held bara að mati mjög margra sérfróðra aðila, ekki í því að framleiða meiri orku. Þetta vandamál, þessi framboðsskortur, sem er ekki það sama og raforkuskortur, hér er bara ójafnvægi á milli framboðs og eftirspurnar raforku — þessi skortur sem er til staðar akkúrat núna skapaðist á raforkumarkaðnum og þar af leiðandi þarf að leysa hann innan raforkumarkaðarins með markaðslausnum í samræmi við gerðir Evrópuþingsins og ráðsins sem við erum búin að innleiða í raforkulögin. Þar er m.a. talað um opinbera þjónustu markaðsaðila eða opinberra skyldu markaðsaðila.

Ég held að ég þurfi bara að halda áfram í næsta andsvari en vatnsafl er mjög takmörkuð auðlind og ég held að það sé ekki hægt að nýta hana til fulls til þess að bregðast við framboðsskorti á raforkumarkaði.