154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:21]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja. Já, vatnsafl. Það eru vatnsaflsvirkjanir í nýtingarflokki sem hafa ekki enn þá hafið framkvæmd en það er vissulega af því að við erum bundin ákveðnum skilyrðum, bara þjóðréttarlegum skilyrðum og skuldbindingum, til þess að vernda vatnshlotin okkar og bara miðað við hvernig framkvæmdin var lögð upp þá er ljóst að þetta verður ekki — uppbygging þess í núverandi mynd. Ég er ekki að tala um eina ákveðna virkjun, heldur bara mögulega þessa vatnsaflskosti sem eru að verða fyrir töf akkúrat núna. Það er vegna þess að þeir eru ekki í samræmi við kröfur t.d. laga um stjórn vatnamála þar sem lögð er skylda á öll aðildarríki sem hafa innleitt vatnatilskipunina að koma í veg fyrir rýrnun vatnsgæða.

Síðan varðandi raforkuskortinn, sem hér blasir við, og hvort það þurfi að framleiða meiri raforku, ég ætla ekkert að fara út í rökræður um það. En vissulega þarf að hafa í huga að jafnvel þó að við framleiðum meiri raforku með vatnsafli þá mun staða vatnslónanna, (Forseti hringir.) eins og hefur komið í ljós síðustu mánuði og ár, ekkert endilega skána. Þá verður kannski samt enn þá slæm staða í vatnslónunum (Forseti hringir.) og þar af leiðandi gæti verið þörf á því að vindmyllur tækju við í staðinn, bara til þess að gefa kost á jöfnunarorkukosti þegar staða vatnslónanna er slæm. (Forseti hringir.) — Fyrirgefið, forseti.

(Forseti (AIJ): Forseti minnir á afar takmarkaðan ræðutíma þegar andsvör eru svona vinsæl.)