raforkulög.
Herra forseti. Ég skal vera þægur tímalega. Ég þakka andsvarið. Vatnsgæðahluti Evrópuregluverksins er eitthvað sem kallar eiginlega alveg á sérstakt samtal hérna sem ekki er hægt að fara í á einni mínútu. En hvað þau sjónarmið varðar hér heima þá held ég að menn séu á mjög þunnum ís, svo að vægt sé til orða tekið. Þetta er allt saman rétt sem hv. þingmaður segir varðandi Evrópuregluverkið eins og það horfir við okkur. En það breytir því ekki að það getur ekki verið markmið þess erlenda regluverks að hindra græna, umhverfisvæna orkuframleiðslu. Ef við reynum að fara í kjarnann og átta okkur á því hvert markmið þessa regluverks er þá getur það ekki verið það að stoppa verkefni eins og hér eru í nýtingarflokki. Það er útilokuð niðurstaða.