raforkulög.
Herra forseti. Við hv. þingmaður höfum báðir bakgrunn í mannvirkjageiranum og finnst fátt fallegra en að sjá mannvirki rísa upp úr jörðu, jafnvel þó að það sé stundum í ósnortinni náttúru, ef það er vel gert. (BergÓ: Mikið rétt.) Þetta snýst allt um það að gera hlutina vel. Þess vegna hef ég alltaf pínu gaman af þessari ofurviðkvæmni hv. þingmanns þegar kemur að vindorkunni vegna þess að ég er nú eiginlega á því að ef það er vel gert þá getur það líka orðið stórkostleg viðbót við orkuöflun okkar. (BergÓ: Hefurðu séð mikla fjölbreytni …)
Ég deili alveg skoðun hv. þingmanns á því að ef virkjunarkostir eru komnir í nýtingarflokk eftir mjög mikla yfirlegu og samþykkt hér á þingi þá þurfi að vera mjög veigamikil rök til að fara að flækja málið og leggjast gegn því. Og af því að hér var Evrópusambandið nefnt áðan og Evrópusambandið hefur einmitt lagt áherslu á forgang slíkra verkefna, grænna orkuöflunarverkefna, er hv. þingmaður sammála mér um það að við eigum auðvitað, þó að við gerum málefnalegar kröfur, að greiða fyrir verkefnum sem eru komin í nýtingarflokk?