154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:25]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og hefði nú bara mestan áhuga á því að segja svona sirka 60 sinnum já í röð við spurningunni, því að auðvitað eigum við að ryðja úr vegi hindrunum gagnvart þeim verkefnum sem hafa einmitt farið í gegnum mjög djúpa skoðun, greiningu yfir langan tíma og eru þeirrar gerðar að þau eru komin í nýtingarflokk rammaáætlunar. En þá hefst, eins og ég kom inn á í ræðu minni, nýtt ferli, nýtt tafaferli sem gengur einhvern veginn út á það að reyna þrátt fyrir allt að bregða fæti fyrir orkuöflunarverkefnið sem er þó komið á þann stað að vera í nýtingarflokki rammaáætlunar. En sem sagt, svarið er já, við eigum að liðka fyrir. Og bara eins og hv. þingmaður segir réttilega; vinir okkar í Evrópusambandinu hvetja til þess að það sé stutt við að svona verkefni komist áfram. En við tökum kannski umræðu um arkitektúr vindmylla í næsta svari.