154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:27]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Nei, ég ætlaði eiginlega þvert á móti að fara í fjölbreytileika okkar Íslendinga. Við erum einnar gerðar og ákveðin tegund mannfólks, en svo er til fólk sem er með aðrar hugmyndir en við. T.d. kom hv. þm. Lenya Rún Taha Karim hérna upp áðan og var að tala kannski dálítið á öðrum nótum og ég held að við verðum einmitt að virða það. Ég held að við verðum að virða það að fólk hefur fjölbreyttar hugmyndir um hvernig við eigum að umgangast þessa orkuöflun og við verðum að finna einhvern meðalveg. Þá kemur að því að þetta snýst ekki bara um orkuöflun. Þetta snýst líka um dreifingu orkunnar og þetta snýst um orkunotkun. Og af því að hv. þingmaður kom inn á möguleikana í glatvarma þá langar mig að spyrja: Ættum við ekki að leggja bara töluvert mikla áherslu á það að hvetja og efla fyrirtæki til að nýta glatvarmaorku og selja inn á kerfið?