154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið og tek undir að við ættum að hvetja til þess sem mest við getum. Staðreyndin er sú að við ættum í raun að vera að gera allt saman, eitthvað af öllu, nema kannski vindmyllurnar þínar. Þetta þarf að spila saman. Og eins og ég kom inn á í ræðu minni þurfum við einhvern veginn að finna leið, bæði mannfólkið, náttúran, mismunandi geirar atvinnulífsins, til að búa saman í sátt og samlyndi. Og rétt eins og hv. þm. Lenya Rún Taha Karim kom inn á hér áðan þá eru önnur sjónarmið uppi sem sannarlega þarf að bera virðingu fyrir og taka tillit til. En mitt mat er að einmitt rammaáætlunin hafi verið álitin verkfærið til að gera það og þar hefði verið reynt að draga fram sátt sem væri hægt að vinna með áfram til þess að koma verkefnum áfram þar sem það á við eða vernda varanlega þar sem það á við.