154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:29]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir mjög fína ræðu. Ég hlustaði af athygli á það sem hann var að segja. Mér fannst orðanotkunin svolítið áhugaverð þegar talað var um forréttindablindu. Ég get alveg tekið svolítið undir hugsjónirnar sem eru á bak við það. Þegar við búum við þessa gnægð af hreinni og góðri og grænni orku þá sjáum við kannski stundum ekki skóginn fyrir trjánum.

Það var líka komið aðeins inn á það að ef við ætluðum að haga okkur þannig að gefa þau skilaboð út að það verði engir raforkusamningar endurnýjaðir þegar þeir renna út, að það verði bara svona einhver almenn hugsun hérna, þá bitnar það auðvitað á trúverðugleika okkar út á við, sem var ágætt að fara hérna aðeins í. En það hefur aðeins verið rætt um það hér í dag og náttúrlega miklu oftar í þessum sal hvort hér sé hreinlega orkuskortur eða hvort það sé ekki orkuskortur. Mér finnst öll teikn á lofti um að það sé algjörlega augljóst að við höfum sofið svolítið á verðinum. En mig langar að spyrja hv. þingmann: Kann hann einhverja skýringu á því? Þetta blasir svo augljóslega við mér og ég held líka hv. þingmanni. Af hverju erum við á þessum stað? Af hverju erum við að takast á um þetta grundvallaratriði þegar allar (Forseti hringir.) mælanlegar staðreyndir beina okkur í þá átt að auðvitað höfum við ekki verið að gera þetta rétt á undanförnum árum?