154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:31]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa spurningu. Það er nú svo oft sem maður verður hissa á sjálfum sér hvað okkur tekst oft illa til að spyrja okkur réttu spurninganna í réttri röð. Þetta er auðvitað ein þeirra spurninga sem ætti að vera hér fremst í röðinni, ef svo má segja: Er orkuskortur eða ekki á Íslandi? Eins og bara eins og hv. þingmaður kom inn á þá teiknar, held ég, allt það mat og allar þær spár sem liggja fyrir frá fagaðilum upp þá mynd. Eins og ég kom inn á í andsvari hér áðan þá er það sennilega ekki víða annars staðar en í mati Landverndar sem kemur fram sú afstaða að orkuskortur sé ekki til staðar. Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur hélt því fram um tíma að svo væri ekki. Ég held að það sé minni eftirfylgni í þeirri skoðun í dag en var þá. En ég held að ástæðan fyrir því að menn sofi á verðinum sé eitthvert sambland af því að það voru ákveðnir hópar að segja: Það er enginn orkuskortur, þetta liggur bara í flutningskerfunum og þetta liggur í einhverju hér og þar. Í einhverju samhengi þurfi að laga þetta allt saman, bæði flutningskerfið (Forseti hringir.) og að framleiða nýja orku. Það dugar ekki einhver einn þáttur, að laga flutningskerfið eða henda út einu álveri. Við lendum þá bara aftur á vegg innan nokkurra ára.