raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Aðeins að hinni pólitísku stöðu í þessum málaflokki, reyndar sem mörgum öðrum. Hv. þingmaður kom aðeins inn á þetta í ræðunni sinni. Nú er það þannig að ég og hv. þingmaður erum svo sannarlega ekki sammála um allt en sumt erum við auðvitað svolítið sammála um. Þessir tveir flokkar, Viðreisn og Miðflokkurinn, lögðust á árarnar og gáfu þau skilaboð skýrt út til ríkisstjórnarinnar að það væri vel hægt að láta reyna á þingmeirihlutann hér til að koma málum til betri vegar í þessum málaflokki og jafnvel öðrum. Við í mínum flokki höfum reyndar gert þetta í fleiri málum í þeirri von að það sé hægt að liðka fyrir góðum málum, að þetta sé ekki allt læst, stundum vegna þess að tiltölulega fámennur hópur þingmanna er á móti en mikill meiri hluti þings með. Þannig að mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji einhverja von til þess núna þegar það er svona stutt eftir af kjörtímabilinu, að einhverjar slíkar lausnir, pólitískar lausnir, geti fært okkur út úr þessu skapalóni stjórnar og stjórnarandstöðu, geti hnikað málum áfram. Eða er það algjörlega borin von?