raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hvort ríkisstjórnin sé orðin orkulaus — ég tel ekki svo vera. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á því að við erum hér tveir eða þrír stjórnarliðar, full af orku, að taka þátt í þessari umræðu. Það er mjög mikilvægt, hv. þingmaður, þegar við erum að fjalla um þessi mál, að við höfum allar staðreyndir uppi á borðinu. Það hefur orðið ákveðin uppbygging undanfarin ár varðandi flutningskerfi raforku. Hún hefur átt sér stað og sömuleiðis hefur verið mikil uppbygging sem snýr að dreifikerfinu. Virkjunarhlutinn, ég get tekið undir það að þar hefðum við getað gert mun betur, það er alveg hárrétt. En við getum líka minnst á að það hafa sprottið upp virkjanir, jarðvarmavirkjanir sömuleiðis, á Þeistareykjum og á fleiri stöðum, sem eru að framleiða orku. En getum við gert betur? Vissulega. En við erum ekki orðin straumlaus.