raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég get verið sammála honum að mörgu leyti. En ég tók eftir því í ræðunni að hann var á ákveðnu tímabili eiginlega að kenna regluverki Evrópusambandsins um ástandið hér. Að hve miklu leyti telur hann ástandið vera vegna regluverks Evrópusambandsins og að hve miklu leyti, hlutfallslega í prósentum, er það afleiðing klúðurs ríkisstjórna undanfarinna ára, sem hafa að mestu leyti verið skipaðar þessum fjórum flokkum sem hafa verið við völd, hvað það varðar að búa til regluverk? Það er að þvælast fyrir þeim núna og verður til þess að það virðist vera eina lausnin að búa þessa afurð til í stað þess hreinlega að leysa orkuskortinn, sem virðist ekki hafa verið gert. Ég sé ekki, fyrst þessir flokkar hafa ekki getað tekið á þessu á sjö árum, að það gerist í sjáanlegri framtíð, ég spyr hv. þingmann út í það. Eða hvort fram komi annað mál sem verður þá einhver önnur skammtímalausn til þess að reyna að redda klúðrinu.