154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[15:59]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hv. þingmaður taldi að ég hefði verið að hnýta í orkupakka þrjú. Það er ekki rétt. Eins og ég tók til orða þá þurfum við að vinna eftir þeim ramma. Ég var ekki að tala það niður. Við erum hluti af EES og það eru ákveðnir þættir sem við tókum út úr þeim hluta. Raforkan er ekki þar inni, bara það sem snýr að sjávarútvegi og landbúnaði. Þar af leiðandi þurfum við að ganga í takt við það sem þar kemur fram. Við þekkjum báðir, ég og hv. þingmaður, þá umræðu sem átti sér stað varðandi þriðja orkupakkann.

Við þurfum alltaf að horfa fram á við og með þessu frumvarpi er ekkert verið að redda einhverjum málum. Það er bara hluti af framtíðarsýn hvað það varðar hvernig við sjáum raforkumarkaðinn fyrir okkur og hvernig við ætlum að tryggja að eftirspurnin sem fram undan er, (Forseti hringir.) um raforku um ókomna tíð — hvernig tryggjum við að almenningur sé í forgrunni?