raforkulög.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu þar sem hann fór yfir þó nokkra punkta og svaraði nokkrum spurningum sem ég hafði til að byrja með. Mig langaði hins vegar að staldra við þann hluta ræðunnar hjá hv. þingmanni sem varðar ógagnsæi hvað varðar raforku, að hér væri ógagnsæi. Ég er vissulega sammála honum um það. Fram hafa komið ýmsar skoðanir sérfræðinga og þetta er náttúrlega bara eitthvað sem hefur verið staðfest af EFTA-dómstólnum í framkvæmd hvað varðar raforkuöryggi, þ.e. viðskiptavettvang raforku. Ég veit að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur áform um að setja á fót skipulagðan viðskiptavettvang raforku og ég vænti þess að það fari fyrir atvinnuveganefnd. Það hefur komið í ljós, m.a. í dómaframkvæmd EFTA-dómstólsins, að ef viðunandi markaðsaðstæður eru til staðar og hinn frjálsi orkumarkaður gegnir hlutverki sínu við að tryggja raforku þá eigi ekki að ganga (Forseti hringir.) lengra en þörf krefur til að tryggja að aðstæður séu þannig að (Forseti hringir.) ekki þurfi að grípa til einhverra íþyngjandi aðgerða á kostnað réttinda annarra.
Ég vil því spyrja hv. þingmann hvort hann sé hlynntur skipulögðum viðskiptavettvangi fyrir raforku.