154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[16:03]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er mjög gott að heyra, og gleður mig að heyra og sjá fyrir mér hvernig útfærsla slíks markaðar yrði. Miðað við þau drög sem ég hef séð að frumvarpi um viðskiptamarkað fyrir raforku, og líka miðað við hvernig önnur Norðurlönd, til að mynda Noregur, hafa gert þetta, þá eru lögin nánast samhljóða skipulögðum vettvangi fyrir fjármálagerninga. Já, ég ætli ekki einu sinni að fara út í það. En þetta er bara að fyrirmynd REMIT þar sem fjallað er um gagnsæi og hátternisreglur á heildsölumarkaði raforku. Nú hef ég því miður ekki langan tíma en ég vil meina að slíkur markaður, sem mælir fyrir um ákveðnar hátternisreglur sem eiga að stuðla að gagnsæi, myndi síðan gegna stærra hlutverki við að tryggja raforkuöryggi almennings þannig að ekki þyrfti að grípa til þeirra markaðsinngripa sem kveðið er á um í þessu frumvarpi.