154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[16:04]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég fékk svo sem ekki alveg beina spurningu frá hv. þingmanni en ég get tekið undir margt af því sem kom fram hjá henni. Það verður alltaf vandrataður sá vegur hvernig við ætlum að forgangsraða innan þeirra heimilda sem við höfum skuldbundið okkur til að vinna með. Þess vegna kom ég inn á það áðan sem sneri að sjávarútvegi og landbúnaði, að þessum grunnfyrirtækjum sem eru að vinna úr lífrænu hráefni, við getum bara orðað það þannig, og skapa verðmæti. Til þess er leikurinn gerður. Við erum að nýta auðlindir okkar, fallvötnin og væntanlega vindinn í framhaldi, til að skapa tekjur fyrir þjóðarbúið en ekki til að gambla eða græða á því að versla með raforku. Það er stóra málið í þessu. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að við göngum hægt um gleðinnar dyr hvað þetta varðar og höfum rammana skýra.