raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina. Það er ekki hægt að koma mörgu á framfæri í spurningum á þetta stuttum tíma. Mig langar aðeins til að nefna eitt sem ég veit að við höfum öll verið að kljást við í atvinnuveganefnd og það er að ná einhvers konar heildrænni yfirsýn yfir stöðuna. Við höfum eðli málsins vegna, í ljósi aðstæðna í vetur, verið að kljást við mál sem varða orkuskort og viðbrögð við því. Á sama tíma kemur hver einasti gestur sem tengist málinu inn og segir: Það bráðvantar einhverja yfirsýn yfir þetta. Við þurfum ramma, við þurfum að skýra hugtök. Við þurfum að skýra sameiginlegan skilning á því hvað við erum raunverulega að tala um og við þurfum að átta okkur á því hvers lags framleiðslu við erum með í höndunum. Það er rétt, sem hv. þingmaður kemur inn á, að það er orkan. Við þurfum að tryggja örugga orku alls staðar á landinu ef við ætlum að standa við það sem við erum að segja um að tryggja byggðafestu. Verðið skiptir líka miklu máli. Þetta er ekki eins og hver önnur vara þar sem við látum bara skurðpunkt framboðs og eftirspurnar mætast og þar ákvarðast verð og málið er dautt. Það er bara ekki þannig. Við þurfum líka að hafa það í huga að hér er um að ræða okkar nýtingu á náttúruauðlindum (Forseti hringir.) sem þarf að eiga sér stað á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Mig langar að spyrja hv. þingmann um hans hugleiðingar: (Forseti hringir.) Þyrftum við ekki einhvern veginn að byrja á þessum endanum áður en við förum niður í hverja sértæka lausnina á fætur annarri í flóknu máli?
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)