raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Markmið raforkulaga eru nokkuð skýr, þ.e. að stuðla að þjóðhagslega hagkvæmu raforkukerfi og efla atvinnulíf og byggð í landinu. Það er tilgangurinn. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni þegar við förum að tala um gegnsæi raforkumarkaðar á Íslandi. Hvar byrjum við, hvort kemur á undan, eggið eða hænan? Því er ekki auðsvarað. Aftur á móti tel ég að þau skref og sú vinna sem atvinnuveganefnd hefur unnið í vetur geti gert það að verkum að viðkomandi aðilar eigi betri kost á því að taka ákvörðun um það í hvaða átt við förum. Vissulega greinir okkur á um frjálst flæði (Forseti hringir.) og markaðinn og annað en grunnatriðið er alltaf það sama, þ.e. hvernig við tryggjum forgangsraforku.