raforkulög.
Forseti. Ég þakka fyrir andsvarið og langar að leggja út af þessum lokaorðum. Grunnstefið er þetta: Hvernig tryggjum við orku? Það eru ýmsar leiðir til en grunnurinn hlýtur að vera sá að framleiða orku. Höfum við framleitt nóg? Um það stendur styrinn og ég held að við séum mörg komin á þá skoðun að þar þurfum við að bæta í. Við þekkjum það líka að oft og tíðum er verið að tala um mikilvægi þess að einfalda málsmeðferðina, ekki síst á verkefnum sem hafa einfaldlega þá stöðu að vera þjóðhagslega mikilvæg. Við getum talað um orkuskipti sem heild en við getum líka talað um smærri atriði. Við getum talað um uppbyggingu atvinnuvega og við getum talað um að tryggja byggð víðs vegar um landið. Listinn er tiltölulega langur. Við höfum verkfærið sem er ramminn en við höfum líka vitneskju um að meira að segja verkefni sem fá stöðu nýtingar í rammanum tefjast um ár og áratugi. Við virðumst einhvern veginn ekki ráða neitt við neitt.
Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður og formaður atvinnuveganefndar sé til í að skoða þá vinnu sem nú er í gangi (Forseti hringir.) á vettvangi Evrópusambandsins um að búa til farveg fyrir samþykkt verkefni sem eru til að tryggja orku í samfélagslega mikilvægum verkefnum, að þau fái tiltölulega (Forseti hringir.) mikla flýtimeðferð þegar um er að ræða verkefni sem eru samfélagslega mikilvæg og varða orkuskipti og græna framtíð okkar allra.