raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Stutta svarið við spurningu hv. þingmanns er: Jú, það þurfum við að gera, svo sannarlega. Okkur Íslendingum hættir til, og kannski er það ekkert séríslenskt, að flækja hlutina svo voðalega að við verðum föst í sama hjólfarinu dag eftir dag og mánuð eftir mánuð og miðar ekkert áfram. Það gengur ekki að það taki óratíma að komast áfram í kerfinu til að geta farið í það að virkja fallvötnin. Ég tek því undir það heils hugar með hv. þingmanni að vissulega þarf að einfalda hlutina. Það þarf að flýta sér og ganga hratt en við megum samt aldrei ganga of hratt og misstíga okkur í leiðinni. En við getum unnið hraðar og gert hlutina betur en við erum að gera í dag, svo mikið er víst.