154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[16:12]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður sagði að orkan lýsti okkur veginn. Ég býst við að faðir þingmannsins, Pétur heitinn Þórarinsson, hefði sagt að Jesús Kristur myndi lýsa okkur veginn og líklega er hvort tveggja rétt. En þingmaðurinn talaði um að skilgreina hvaða forgangshópar ættu að njóta orkunnar. Ég verð nú að segja að við þurfum eiginlega bara að tryggja öllum orku. Það er stóra vandamálið. Þingmaðurinn kom inn á áhugaverðan hlut þegar hann sagði að sjávarútvegur og landbúnaður væru hugsanlega ekki samkeppnishæfir við gagnaver. Við erum báðir áhugamenn um uppbyggingu dreifikerfisins og ég spyr: Er hv. þingmaður sammála mér um að það að geta ekki útvegað stórum fiskvinnslufyrirtækjum, t.d. á Austurlandi, græna orku á tímum þar sem neytendur eru sífellt að leita eftir vistvænni vöru, geti skaðað þessi fyrirtæki í samkeppni við önnur sem sannarlega hafa aðgang að grænni orku?