raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Það kom fram í minni ræðu hér áðan að ég vildi horfa til þess að við gætum forgangsraðað til þessa hóps. Eins og staðan er í dag eru þessi fyrirtæki að kaupa skerðanlega raforku og þar af leiðandi er ekki tryggt að þau fái raforku yfir höfuð. Undanfarin ár hefur það náttúrlega verið þannig að það hefur meira eða minna verið keyrt á jarðefnaeldsneyti. Við þurfum nefnilega að horfa á það, við þurfum bara að taka pólitíska ákvörðun og segja: Heyrðu, við ætlum að hafa hlutina svona. Þessi fyrirtæki eiga að hafa aðgang að grænni orku. Þetta eru þjóðhagslega hagkvæm fyrirtæki. Þau eru að framleiða úr lífrænni vöru, hágæðavöru, og við ætlum að gera þetta svona. Því kom ég inn á það í minni ræðu áðan að þess vegna þurfum við að horfa til þess hvernig við treystum framleiðslu þessara fyrirtækja, hvernig þau hafa aðgang að grænni orku.