raforkulög.
Frú forseti. Já, við hv. þingmaður erum hjartanlega sammála. Ég lít þannig á að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til að tryggja þetta, fyrir utan það að fyrirtæki eru að kaupa skerðanlega orku. En svo eru fyrirtæki sem hafa ekki aðgang að grænni orku, eins og við þekkjum. Til að þetta sé hægt þurfum við enn að bæta í flutningskerfið, þó að vissulega hafi náðst töluverður árangur á undanförnum árum. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvaða leiðir hann sér fyrir sér í því, því að það getur verið ótrúlega þreytandi að horfa upp á tafir vegna einstakra sveitarfélaga, einstakra ábúenda eða félaga eða annars slíks; hvort við þurfum ekki miklu skýrara landsskipulag sem í rauninni setji þessum hlutum skýrari skorður og setji þá í forgang.