raforkulög.
Frú forseti. Í dag stöndum við frammi fyrir því mikilvæga verkefni að tryggja raforkuöryggi Íslands. Við lifum á tímum þar sem áskoranir í orkumálum kalla á skilvirkar og skynsamlegar lausnir sem tryggja öryggi og sjálfbærni orkuframboðs okkar. Raforkuöryggi snýst ekki aðeins um að halda ljósunum kveiktum. Það snýst um að viðhalda lífsgæðum, öryggi og atvinnustarfsemi landsins. Þegar raforkuskortur verður, sem oft er kallað á ensku, með leyfi forseta, „blackout“ eða „brownout“, upplifum við bein áhrif á daglegt líf okkar og öryggi. Þegar á ensku er talað um „blackout“ þá vísar það til algjörs rafmagnsleysis sem getur staðið yfir í skamman eða langan tíma, og haft veruleg áhrif á allt frá heimilum til sjúkrahúsa og neyðarþjónustu. Á ensku er orðið „brownout“ hins vegar notað um það þegar raforkuframboð minnkar og verður ekki nægt. Það getur valdið bilunum í rafmagnstækjum og truflunum og skemmt viðkvæm tæki.
Þessar aðstæður minna okkur á mikilvægi þess að hafa trausta og örugga raforkuþjónustu. Það undirstrikar nauðsyn þess að ríkisstjórnin og orkufyrirtækin séu viðbúin, ekki bara viðbúin því að sporna við þessum vandamálum heldur einnig að bregðast hratt og skilvirkt við þegar þau koma upp. Við verðum að tryggja að allir, óháð búsetu eða tekjum, hafi aðgang að áreiðanlegri raforku. Þetta er ekki aðeins spurning um þægindi heldur er þetta grundvallaratriði í öryggi og velferð hvers einstaklings í samfélaginu. Á ferð minni um landið í vetur var skelfilegt að sjá hvernig þessi skortur á rafmagni hafði áhrif, sér í lagi í dreifðari byggðarlögum á kaldari svæðum. Þar var verið að hita upp hús, skóla og sundlaugar með því að brenna dísilolíu með tilheyrandi kostnaði og losun koltvísýrings í andrúmsloftið. Já, og fólkið þurfti líka að byrja að hugsa um það hversu mikið það væri að nota vegna þess að raforkuverðið hækkaði.
Þegar hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson var að ræða um það áðan að vera ekki of lengi í sturtu minnti það mig á þegar ég flutti til Kaliforníu með fjölskylduna fyrir nokkrum árum. Þar eru hús hituð upp með gasi, bæði vatn og hiti innan húss. Við fengum skilaboð frá gasveitunni um að þeir ætluðu að koma og athuga hvort það væri leki hjá okkur því að það væri svo svakalega mikil notkun. Þeir komu og leituðu og leituðu en fundu ekki neitt og enduðu á því að segja: Þetta hlýtur bara að vera rétt notkun. Við þurftum að eiga gott samtal við börnin okkar um það að sofa ekki með opinn glugga og hitann á fullu og ekki taka langar sturtur, eitthvað sem við Íslendingar höfum vanið okkur á. En því miður, þegar skorturinn er hér heima, þarf fólk einmitt að hugsa um þetta líka.
Í ljósi vaxandi áskorana í orkumálum er mikilvægt að fjalla um hvernig of mikil sala eða ofsala á raforku hefur haft áhrif á orkuframboð á Íslandi. Á undanförnum árum höfum við séð hvernig samningar um raforkusölu, sem oft eru gerðir á langtímagrundvelli við stórnotendur, hafa leitt til þess að minna svigrúm er til staðar fyrir almenna notkun á tímum hámarksþarfa. Þessi umframsala getur skapað þá hættu að á tímum mikillar eftirspurnar, sérstaklega á köldum vetrardögum eða þegar framleiðsla stendur ekki undir væntingum, myndist skortur sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir heimili og fyrirtæki á Íslandi.
Enn fremur þarf að minnast á ástand flutnings- og dreifikerfis raforku á Íslandi. Þessi kerfi, sem mörg hver eru orðin gömul og úrelt, standast ekki lengur þær kröfur sem nútímaorkunotkun gerir til þeirra. Með vaxandi áherslu á sjálfbærni og skilvirkni í orkunotkun er brýnt að nýta tækifærið og fjárfesta í uppfærslu og endurnýjun þessara kerfa. Þetta er ekki aðeins nauðsynlegt til að tryggja öryggi raforkuframboðs heldur einnig til að stuðla að hagkvæmni og minnka orkutap sem fylgir úreltum kerfum. Áframhaldandi aðgerðaleysi í þessum málum getur leitt til enn frekari skerðingar á raforkuöryggi og dregið úr hæfni Íslands til að mæta framtíðarþörfum í orkumálum. Við sem þjóð verðum að vera á varðbergi og grípa til aðgerða sem tryggja að við getum staðið undir nafni sem framúrskarandi þjóð í sjálfbærni og nýsköpun í orkunotkun.
Eitt af þeim áhyggjuefnum sem komið hafa upp í tengslum við stefnu ríkisstjórnarinnar er áherslan á að fjölga virkjunum án þess að nægilegt tillit sé tekið til umhverfisáhrifa sem fylgja í kjölfarið. Fyrir þeim virðist vera mikilvægast að auka hagvöxt endalaust. Það virðist sem stjórnvöld horfi fyrst og fremst á möguleikana á aukinni orkuöflun en hugsi síður um langtímaáhrifin á náttúruna. Slík stefna gæti leitt til óafturkræfra umhverfisspjalla og þar með raskað viðkvæmum vistkerfum sem eru mikilvæg bæði fyrir líffræðilegan fjölbreytileika og jafnvægi í náttúrunni. Þess vegna er brýnt að nálgast alla orkuþróun af varúð og innleiða strangara umhverfismat áður en frekari virkjanir koma til framkvæmda. Eins og ég nefndi áðan ættum við frekar að byrja á því að bæta flutnings- og dreifikerfið og draga úr því tapi raforku sem þar á sér stað.
Mig langar líka að vekja athygli hv. þingmanna á því mikilvæga jafnvægi sem við þurfum að finna milli aukins hagvaxtar og umhverfisverndar. Þar eru kenningar Kate Raworth um svokallaða kleinuhringjahagfræði gott leiðarljós, en á ensku hefur það verið kallað, með leyfi forseta, „doughnut economics“. Raworth leggur áherslu á að hagkerfi okkar þurfi að virka innan tveggja ákveðinna marka: að fullnægja grunnþörfum allra án þess að ganga um of á auðlindir jarðar. Þetta felur í sér að viðurkenna að hagvöxtur sem ekki tekur tillit til umhverfis eða samfélagslegra þátta er ekki sjálfbær.
Við stöndum frammi fyrir þeim áskorunum að endurhugsa hvernig við mælum velgengni okkar, ekki einungis með tölfræði um landsframleiðslu heldur í velferð borgaranna og heilbrigði umhverfisins. Það er tími til kominn að stjórnmálamenn og ákvarðanatökuaðilar taki upp áskoranir kleinuhringjahagfræðinnar og móti stefnu sem styður við sjálfbærni og réttlæti fyrir alla. Það er afar mikilvægt að átta sig á að framtíðarhagkerfið verður að vera hannað til að þjóna bæði móður jörð og fólkinu sem byggir hana. Við þurfum að finna leiðir til að þróa orkugjafa, framleiðsluaðferðir og neysluvenjur sem eru í sátt við náttúruna og tryggja að enginn verði eftir. Þetta þýðir að við þurfum að hugsa um hvernig við getum þá nýtt kleinuhringjahagfræðina til að mynda hagkerfi sem er ekki aðeins hagkvæmt heldur einnig sjálfbært.
Við verðum að viðurkenna að á meðan við leitumst við að ná hagvexti verðum við einnig að tryggja að sá vöxtur valdi ekki umhverfisspjöllum sem geta haft langvarandi og jafnvel óafturkræf áhrif á vistkerfi okkar. Það krefst nýrrar hugsunar um hvernig við getum nýtt auðlindir jarðarinnar án þess að ganga of nærri þeim. Við þurfum að þróa tækni og aðferðir sem minnka umhverfisfótspor okkar og stuðla að endurnýtanleika og endurvinnslu. Látum þessi viðmið verða okkar leiðarljós. Með því að samþykkja og innleiða þessi gildi í allar okkar ákvarðanir getum við tryggt að framtíðin verði björt fyrir komandi kynslóðir. Við höfum tækifæri til að leiða með fordæmi, að sýna heiminum að hægt er að ná hagvexti án þess að fórna heilbrigði plánetunnar okkar.
Frumvarp til breytinga á raforkulögum, sem við ræðum hér í dag, er hannað til að styrkja stöðu þeirra sem mest þurfa á tryggu raforkuframboði að halda; heimilunum, smáfyrirtækjum í landinu og þeim sem veita mikilvæga þjónustu. Við vitum öll að orkuöryggi er ekki aðeins tæknilegt mál, það er líka spurning um félagslegt réttlæti. Lögð hefur verið fram tillaga sem miðar að því að tryggja að við óviðráðanleg atvik, þegar raforkuframboð fullnægir ekki eftirspurn, verði gripið til skömmtunar með málefnalegum og réttlátum hætti. Er það ekki einmitt hlutverk okkar sem þjónum almannahagsmunum að tryggja að í neyðartilvikum verið tekið tillit til þarfa allra borgara? Þetta frumvarp gerir ráð fyrir að Orkustofnun og flutningsfyrirtækin hafi skýrara hlutverk í að framfylgja þessum markmiðum, að öryggi sé bætt og að upplýsingar um orkumarkaðinn séu gerðar aðgengilegar. Þessi opnun á upplýsingaflæði er nauðsynleg til að markaðsaðilar og almenningur geti tekið upplýstar ákvarðanir sem varða orkunotkun.
Það er ekki síður mikilvægt að við höfum skýrar reglur um forgangsröðun ef skömmtun verður óhjákvæmileg. Það er grundvallaratriði að þeir sem standa veikastir þegar kemur að orkunotkun, svo sem heimili og smáfyrirtæki, njóti verndar. Einnig er það þannig í þessu frumvarpi að mikilvægir samfélagsinnviðir skulu njóta verndar. Þetta var nokkuð sem við ræddum mjög mikið í nefndinni. Þess skal getið að þetta er sennilega það mál sem er búið að fjalla hvað mest um í nefndinni, alla vega oftast, vegna þess að það tók langan tíma fyrir okkur að komast niður á skilgreiningu á því hvernig ætti að tryggja að það væru ekki bara heimilin og smáfyrirtækin sem væri verið að vernda heldur líka mikilvægir innviðir. Mig langar að hrósa hv. framsögumanni, sem því miður er ekki hér í salnum — það hefði verið gaman að hafa fleiri nefndarmenn í salnum úr atvinnuveganefnd en það eru þó alla vega tveir stjórnarþingmenn í salnum. Það er ánægjulegt að sjá hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson og Jóhann Friðrik Friðriksson hér inni að taka þátt í umræðunni. En eins og ég sagði þá náðist að finna leið til að skilgreina þá notendur raforku sem skilgreindir eru sem mikilvægir samfélagsinnviðir. Lausnin sem var fengin var í raun dregin af því hvernig þetta er gert þegar kemur að netöryggismálum, ef ég man rétt. Þar var búinn til listi yfir þá aðila sem féllu undir þau lög og sama aðferðafræði var notuð hér. Með leyfi forseta bætist við ný málsgrein í breytingartillögu við 3. gr. c-liðar. Hún er svohljóðandi:
„Raforkueftirlitið skal halda opinbera skrá yfir þá notendur raforku sem skilgreindir eru sem mikilvægir samfélagsinnviðir samkvæmt ákvæði þessu með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, að fenginni staðfestingu ráðherra. Skráin skal uppfærð eftir því sem tilefni er til og á a.m.k. tveggja ára fresti.“
Það tók svolítinn tíma að koma þessu inn en þetta gerði það að verkum að við gátum náð betri skilgreiningu í kringum það hverjir ættu að njóta forgangs. Að sjálfsögðu munu sjúkrahús, elliheimili, hjúkrunarheimili o.s.frv. verða á þessum lista. Það var ánægjulegt að sjá að við náðum saman um hvernig hægt væri að skilgreina þetta. Þetta tók langan tíma en það er akkúrat til þess sem nefndarstörfin eru.
En svo ég haldi áfram þá þurfum við að huga að framtíðinni. Það er ljóst að þörf fyrir raforku mun aðeins aukast og við verðum að vera tilbúin að takast á við þá áskorun með því að styrkja innviði okkar og tryggja að raforkukerfið okkar sé búið undir aukna eftirspurn. Það krefst fyrirhyggju og fjárfestinga og betri stjórnunar á þeim auðlindum sem við þegar höfum. Það er von mín að við látum þetta frumvarp verða skref í átt að því að efla raforkuöryggi okkar Íslendinga og að við tryggjum að við séum undirbúin fyrir óvæntar áskoranir á raforkumarkaðnum. Við sáum það hér fyrir einungis örfáum mánuðum að hætta var á því að heilt raforkuver dytti út vegna eldsumbrotanna, ekki vegna þess að eldsumbrotin færu endilega yfir í raforkuverið sjálft heldur yfir allar línur sem frá því liggja. Við sem búum á Reykjanesi fundum einmitt fyrir því hvað það þýddi að missa heita vatnið til að hita húsin okkar þótt ekki væri nema í eina viku um miðjan kaldan vetur. Við vorum í raun heppin að það var ekki kaldara en það var vegna þess að ef það hefði verið enn kaldara úti hefðu mörg húsin kælst niður mun hraðar. Við búum á landi þar sem náttúruhamfarir sem slíkar geta orðið hvenær sem er. Það er ekki bara það að ekki komi nóg vatn í uppistöðulón, eins og leit út fyrir að gæti gerst núna í vor, heldur er það líka það að náttúran sem við búum við getur komið okkur á óvart með mjög skömmum fyrirvara og við þurfum að vera búin undir það. Við verðum að vera búin undir þessar óvæntu áskoranir. Aðgerðir okkar í dag munu ekki einungis hjálpa okkur að mæta núverandi þörfum heldur vonandi einnig tryggja sjálfbærni og öryggi fyrir framtíðarkynslóðir hér á Íslandi.