raforkulög.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir afskaplega fína ræðu og ég get tekið undir margt í hans málflutningi. Ég veit að nefndin er svo sannarlega búin að vera að skoða þessi mál í langan tíma. Ég er ekki viss um að það séu mörg sambærileg mál sem hafa fengið eins margar gestakomur og verið unnið eins mikið og vel í. Það er gríðarlega mikilvægt vegna þess að mín upplifun er sú að við höfum sofið á verðinum að því leyti til að þetta er flókinn málaflokkur og síbreytilegur og svo er staðreyndin sú að við höfum verið að glíma við orkuskort í landi þar sem við höfum nú venjulega talið að til væri gnægð orku.
Spurning mín til þingmannsins snýr kannski fyrst og fremst að því að hann nefnir að stjórnvöld hafi aðallega verið að velta fyrir sér krafti í meiri virkjanaframkvæmdir en það kemur líka inn á alla þessa þætti eins og flutningskerfið, að sporna við sóun og svo mætti lengi telja. Þurfum við ekki að horfa heildrænt á þetta og setja okkur skýrari markmið í öllum þeim þáttum sem hv. þingmaður nefndi?