raforkulög.
Frú forseti. Já, ég held að við séum að mörgu leyti sammála. Ég óskaði eftir sérstakri umræðu varðandi orkusóun einhvern tímann fyrr í vetur og vilji var til staðar, en ég hefði viljað sjá stjórnvöld stíga fastar niður þar og ekki síður sveitarfélögin. En hv. þingmaður nefndi þær afleiðingar sem við sáum þegar við misstum heitt vatn út á Suðurnesjum vegna jarðhræringa og eldgoss á Reykjanesi. Þá liggur beinast við að spyrja, í landi þar sem við erum að glíma við náttúruvá víðast hvar, hvort við þurfum ekki sérstaklega að gera áhættumat á því hvernig við getum reynt að tryggja varaleiðir, ekki bara í vatni og svo sem ekki bara í rafmagni heldur líka varðandi aðra þætti eins og samskipti o.s.frv. Ég veit að þingmaðurinn hefur mikinn áhuga á þessu þannig að það væri fróðlegt að fá hans sjónarhorn á það.