154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[16:41]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég ræddi við aðila sem hafði unnið í áhættumati fyrir eina af virkjununum á Suðurnesjum. Jú, jú, eldgos voru alveg í áhættumatinu en þau voru hins vegar skilgreind sem atburður sem myndi hafa mikil áhrif en litlar líkur væru á. Á ensku er þetta kallað, með leyfi forseta: „high impact, low probability event“.

Það merkilega er að nú er að fara í gang vinna innan Evrópusambandsins, og m.a. hér á Íslandi, við að skoða hversu margt það er sem getur haft mikil áhrif en við höfum hingað til skilgreint á þann veg að litlar líkur séu á að gerist. Líkur gætu verið að aukast, t.d. vegna loftslagsbreytinga. Þess vegna er mikilvægt, eins og hv. þingmaður benti á, að við förum að hugsa um varaleiðir (Forseti hringir.) og við þurfum að fara að hugsa um það hvernig við ætlum að tækla málin ef hlutir detta út.