raforkulög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu, sem satt að segja kemur mér aðeins á óvart. Mér finnst reyndar allur tónninn í þessari umræðu vera á öðrum nótum en ég hef kynnst hér á undanförnum árum, sem snýr að raforkumálum þjóðarinnar, flutningskerfinu og virkjun grænnar endurnýjanlegrar orku. Mig langaði að koma aðeins inn á það að mér fannst hv. þingmaður gera lítið úr þeirri kerfisáætlun Landsnets sem er í gangi. Það hefur töluvert verið gert varðandi flutningskerfi raforku, Kröflulína 3 milli Fljótsdalsstöðvar og síðan Hólasandslína 3 frá Kröflu til Akureyrar. Síðan þarf að fara í Blöndulínu 3 og Holtavörðuheiðarlínu 1 og 3 til að tengja þetta í Grundartanga og klára síðan Suðurnesin. Uppbygging kerfisins frá Reykjanestá í Fljótsdalsstöð er raunverulega meginverkefnið núna. Það hefur verið sett fjármagn í þetta og í kerfisáætlun Landsnets eru stór verkefni á næstu árum. (Forseti hringir.) Ég vildi rétt minna á það varðandi raforku að það er ódýrt að segja að það sé bara verið að hugsa um að virkja. Það hefur gríðarleg vinna verið í gangi þó að áhuginn hafi kannski oft verið takmarkaður á því í þessum þingsal að ræða það málefni.