154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[16:50]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Varðandi Fljótsdalsstöð — eins og ég kom aðeins inn á áðan þá hefur verið unnið við að styrkja tengingar um Kröflulínu 3 til vesturs. Það er því ekki rétt að Fljótsdalsstöð sé bara fyrir álverið í Reyðarfirði. Það er hluti af kerfinu. En það er hins vegar rétt hjá þingmanni — (Gripið fram í.) það er það sem ég ætla að koma inn á næst, þ.e. mikilvægi þess að tengivirki yfir Hryggstekk sé endurnýjað. Það hefur lengi verið kallað eftir því að farið sé í það og það er þetta svæðisbundna kerfi á Austurlandi sem þarf að styrkja með því tengivirki við stóra kerfið. Það er ljóst og fyrir því hefur sá sem hér stendur talað lengi. Það voru einhverjar hugmyndir um að það gæti orðið 2025 eða 2027, ég er ekki alveg með það í kollinum núna hvenær það gerist. En það er sannarlega mjög stórt og mikilvægt verkefni að fá það fram sem allra fyrst til að efla og styrkja kerfið á Austurlandi.