154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[16:51]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek algerlega undir það með hv. þingmanni. Ég sé í þrjá hv. þingmenn úr Norðausturkjördæmi og við erum tvö úr Suðvesturkjördæmi og það mun alla vega ekki standa á mínum stuðningi ef ég get einhvern veginn komið því til verks að þetta tengivirki komi fyrr en síðar. Ég hef séð hvað þetta þýðir fyrir fólkið á þessu svæði, rétt eins og ég hef keyrt um Vestfirðina og séð hvað þarf að gera í vegagerð þar. Fólk þarf ekki annað en að prófa að keyra þar að hausti eða vetri til til þess að skilja af hverju það þarf göng þar og betri vegagerð. Það sama gildir um raforkuna á Austfjörðum. Við eigum bara að ganga í þetta, ekki vera með eitthvert kjaftæði í fjárlaga- eða nefndarvinnunni.