154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[16:52]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu þar sem víða var farið en líka rætt um ákveðin grundvallarprinsipp. Það mál sem við erum að ræða styðjum við í Viðreisn í grófum dráttum en við vörum ítrekað við þeim bútasaumi sem hefur verið í gangi á forsendum þessarar ríkisstjórnar. Við þurfum, ekki síst út frá almannahagsmunum, heildarnálgun og heildarsýn á þennan mikilvæga málaflokk. Ég tek heils hugar undir það með hv. þingmanni að það eru algjör grundvallarréttindi í íslensku samfélagi, pínulítil forréttindi, að almenningur hafi greiðan og öruggan aðgang að ódýrri raforku. En um leið höfum við í huga að markaðsviðskipti og framleiðsla á raforku er líka nátengt nýtingu þjóðarauðlinda.

Þá komum við kannski að spurningu minni sem tengist almannahagsmunum og varðar auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Er ekki brýnt, í ljósi þess að við þurfum að nálgast þetta heildstætt og tryggja réttindi þjóðarinnar þegar kemur að þjóðarauðlindum, hvort sem er í lofti, láði eða legi, að við setjum núna skýrt auðlindaákvæði í stjórnarskrá?