raforkulög.
Frú forseti. Það er mikilvægt að við lögum flutningsnetið. Það fer t.d. nægt vatnsafl fram hjá Kárahnjúkavirkjun til þess að framleiða jafnmikið rafmagn og næsta virkjun sem Landsvirkjun vill einmitt setja upp myndi gera. Ég held því að það séu líka tækifæri til að nýta betur þær virkjanir sem við höfum þegar og, eins og ég sagði áðan, að nýta þá kosti þar sem við erum ekki að eyðileggja meira land en við höfum þegar gert. Þegar við horfum á möguleika á nýjum virkjunarkostum, ef við teljum að við þurfum að fara í þá, þá þurfum við að gera það í sátt. Ég held að við eigum að taka til greina þann lærdóm sem fékkst af því hvernig Kárahnjúkar skiptu þjóðinni upp í tvær fylkingar sem hafa ekki enn náð að sættast. Við þurfum virkilega að passa okkur á að það gerist ekki aftur. Við þurfum að hafa sátt. Við þurfum að finna leiðir þar sem við erum ekki að eyðileggja of mikið af náttúrunni. — Ég held ég sé með allt of mikinn tíma, frú forseti.