raforkulög.
Forseti. Jú, þetta er einmitt einn stærsti hlutinn af orkuörygginu sem slíku. Það er náttúrlega tvíþætt, annars vegar nóg af framleiðslunni og síðan að koma henni á sinn stað. Við erum í góðum málum með það að tryggja heimilum og smærri fyrirtækjum nægilega orku. Það á ekki að vera vandamál. Ég veit ekki hversu lengi í rauninni núverandi orkuframleiðslu myndi duga fyrir því. Við erum, eins og ég segi, í einhverjum 5% fyrir heimilin á meðan önnur lönd eru kannski í 45%, eða eitthvað svoleiðis, þ.e. orkan sem þau framleiða sem fer til heimila. Hinn hlutinn, dreifingin, er einmitt það sem er vandamál á Íslandi eins og er, sérstaklega fyrir ákveðin svæði. Það hefur aðeins verið lagað á sumum svæðum en Vestfirðir eru kannski skýrasta dæmið þar, Austfirðir svo sem alveg líka því að þrátt fyrir að það séu stórar stofnlínur þangað þá nær það einhvern veginn ekki dreifingu út á aðrar afurðastöðvar. En þetta er hárrétt hjá hv. þingmanni.