raforkulög.
Frú forseti. Varðandi einmitt þennan þátt þá getum við sparað 100 milljarða á ári með svipuðum hætti og við höfum sparað gríðarlega fjármuni, örugglega um rúmlega 100 milljarða, með því að nýta heitt vatn til að hita húsin, 90–95% af samfélaginu. En er það ekki þannig að þetta er lykilatriðið með stóriðjuna og þessa sölu til stóriðjunnar sem byggir upp núverandi flutningskerfi að það þarf t.d. — ef við værum bara með raforkukerfi, flutningskerfi sem ætti að sinna heimilum landsins þá værum við ekkert að fara í nein orkuskipti? Við værum aldrei með flutningskerfi raforku sem væri það öruggt og öflugt. Það má segja að þessi orkuframleiðsla, græna orkuframleiðslan með endurnýjanlegri orku og það að hafa tekið þessi skref, sem eru síðan þróast með þessum hætti, þetta mun minnka með árunum, þessi orkusala til stóriðjunnar og aðrir atvinnuvegir munu koma sterkir inn. En er þetta ekki alltaf grunnurinn að þessu, að það var stóriðjan sem skapaði flutningskerfið?