raforkulög.
Jú, þetta er aftur hárrétt hjá hv. þingmanni. Svona voru aðstæðurnar þegar við fengum fyrst stóriðjuna inn til þess að aðstoða okkur við að byggja þetta upp. Þetta var hluti af samningunum, að selja okkur ódýrt. En aðstæður eru í rauninni mjög breyttar núna. Við eigum að geta skipt um gír. Við erum komin úr þeirri stöðu að við þurfum þetta stóriðjufjármagn til að hjálpa okkur að byggja upp. Við erum með bolmagn til að gera það án þess að þurfa að selja okkur ódýrt, bara svona til að hafa það á einfalda háttinn.