raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir áhugaverða yfirferð í ræðu sinni. Ég hnýt auðvitað um það sem hv. þingmaður segir í tengslum við hlutfall þeirrar orku sem stendur heimilum og smærri fyrirtækjum til boða. Það er ekki til sá flötur á íslenskri pólitík þar sem þetta er umdeilt, að slíkt eigi að standa fólki til boða, þ.e. heimilum landsins, en okkur greinir á um aðferðir. Nú er það náttúrlega þannig að það er status quo hér núna í dag, að þetta framboð sé í lagi. Það lýtur auðvitað að mismunandi hlutdeild Landsvirkjunar og annarra aðila á orkumarkaði. Finnst hv. þingmanni hins vegar nægilega mikill fyrirsjáanleiki ríkja um þetta fyrirkomulag? Eins og hv. þingmaður veit mögulega gæti þetta breyst í einni andrá, helmingur af fyrirliggjandi orkumarkaði gæti farið til (Forseti hringir.) stórnotenda í núverandi umhverfi og myndi ég gjarnan vilja heyra afstöðu hv. þingmanns til þess.