raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég tek auðvitað undir að það að vinna ekki markvisst gegn ójafnvægi kostnaðar þegar kemur að orkuverði, sérstaklega í þágu heimilanna, er viss vanræksla af hálfu stjórnvalda. Ég ætla hins vegar að benda hv. þingmanni á það sem hann veit auðvitað líka, að það er nú þegar mikið misræmi í kostnaðarhlutdeild íslenskra heimila á sviði orku. Við sjáum að það er þrefaldur kostnaður við húshitun t.d. fyrir vestan og það er ekkert sem segir okkur að það verði um ókomna tíð einhvers konar markviss vilji af hálfu stjórnenda til þess að jafna þetta frekar en raun ber vitni. En erum við að tala nóg? Finnst hv. þingmanni alla vega við sem skipum þessa stjórnarandstöðu núna og hans eigin flokkur berjast af nægu offorsi í þágu þess að jafna orkukostnað heimilanna á félagslegum forsendum? Og ef ekki, er ekki alltaf svigrúm til bóta?