raforkulög.
Forseti. Það er svo merkilegt að á undanförnum árum í fjárlaganefnd hefur alltaf komið inn aukið fjármagn til þess einmitt að jafna þennan dreifingarkostnað, á hverju ári, og alltaf er okkur sagt: Þetta fjármagn dugar til þess að jafna dreifikostnað á öllu landinu. Og við hugsum bara: Við þurfum ekkert að gera. Við þurfum ekkert að berjast fyrir þessu. Ríkisstjórnin er mjög viljug til að ná þessum markmiðum og allir ýta á græna takkann hérna. Það hefur enginn verið ósammála þessu. Við höldum öll að við séum að ná þessu markmiði. Svo líður árið og nei, þetta dugði víst ekki. Maður klórar sér bara í hausnum: Af hverju ekki? Hvað gerðist? Og þá er það einhvern veginn þannig að það fer út í gjaldskrárnar og þær eru hækkaðar á móti og eitthvað þvíumlíkt og allt í einu er kostnaðurinn sem við héldum að við værum að jafna farinn. Mér finnst Píratar alveg hafa barist fyrir þessu. Við höfum kannski ekki þurft að segja mikið um það af því að frumkvæðið kom frá ríkisstjórninni þannig við hugsuðum bara: Frábært, og ýttum á græna takkann. En svo gerðist það ekki. Mjög skrýtið.